...markađssetur aukakílóin til styrktar góđu málefni...

Ţá er ţađ frágengiđ, skráđi mig í Biggest loser keppni Sporthússins og fyrsti dagurinn í dag, mćlingar, myndataka og allur pakkinn. Get ekki sagt ađ ég hafi veriđ spennt yfir myndatökunni en góđ vinkona stappađi stálinu í mig og stappađi mér svo í bíkini af sér. Hún lét reyndar ekki ţar viđ sitja heldur sá persónulega til ţess ađ ég guggnađi ekki á lokametrunum og fylgdi mér í mćlingarnar! Mér var engrar undankomu auđiđ en sú veit hvađ hún syngur – tók 32 kíló af sér á síđasta ári!  Myndatökunni var reyndar frestađ en fyrstu tölur eru komnar í hús. Engum “línu-ritum” verđur flaggađ ađ sinni en ţađ er ljóst ađ ţađ verkefni framundan.

Frumburđurinn, nú á 13. ári, var furđulostinn, ...hélt ég vćri ađ grínast, ...vissi ekki ađ til vćri svona keppni hér á landi. Hann stóđ viđ eldhúsborđiđ höfđinu hćrri en ég og mćndi mig frá toppi til táar. Ég velti ţví fyrir mér hvort hann vćri ađ velta fyrir sér sannleiksgildi yfirlýsingarinnar, hvort veriđ vćri ađ gefa mér einkunn á hallćrisskalanum eđa meta vinningslíkur mínar í fitutapskeppni. Loks sagđi hann međ miklum sannfćringakrafti: “Ţú tekur ţetta mamma!!!”

Ég veit ekki hvađ blikiđ í augunum ţýddi – eđa tónninn í röddinni - viđ erum nefnilega nokkrum ljósárum í ţroska frá ţví um áriđ ţegar viđ horfđum á America´s Top Model saman. En ţađ er ljóst ađ sem foreldri verđ ég ađ standa mig. Ţađ er ekki hćgt ađ floppa fyrir framan börnin sín. En fyrst stefnan er tekin á gamla góđa formiđ međ tilheyrandi ávinningi fyrir sjálfiđ mitt vćri ţá ekki vert ađ auka svolítiđ pressuna og leyfa öđrum ađ njóta ţess í leiđinni? Láta gott af sér leiđa? Markađssetja aukakílóin og fá fyrirtćki til ađ styrkja langveik börn í leiđinni? Sé ţetta fyrir mér:

Ţriggja barna móđir á fertugsaldri markađssetur aukakílóin til styrktar góđu málefni

Átakiđ hefst 9. janúar og lýkur 7. apríl
Mćlingar fara fram í Sporthúsinu
Fyrirtćkjum bođiđ ađ greiđa 1000 kr fyrir hvert kíló sem hún missir
Umhyggja, styrktarfélag langveikra barna nýtur góđs af

Ertu međ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband